Trump og Rutte funda á Flórída

Rutte og Trump hafa áður hist á fundi. Hér eru þeir á fundi í Hvíta húsinu fyrr á þessu ári.AP / Jacquelyn MartinDonald Trump Bandaríkjaforseti og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, hittast á fundi í Palm Beach á Flórída á morgun, miðvikudag. Reuters greinir frá og vísar í tilkynningu frá Hvíta húsinu.Stutt er síðan Trump fundaði með Vladimír Pútín forseta Rússlands og Xi Jinping forseta Kína.Trump hefur ítrekað gagnrýnt vestræna bandamenn Bandaríkjanna og kallað Pútín og Xi „vini“ sína. Evrópuþjóðir hafa þrýst á að vera með í viðræðum við Úkraínu og Rússland til að binda enda á stríðið í Úkraínu.
Trump og Rutte funda á Flórída

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar