Rekstraraðili tjaldsvæðis Egilsstaða hefur greitt tæpar 100 milljónir í arð

Fyrirtækið sem rekur tjaldstæðið á Egilsstöðum hefur malað gull síðustu ár. Á árunum 2023 til 2025 hagnaðist fyrirtækið um rúmlega 116 milljónir og greiddi út 98 milljóna króna arð. Tekjurnar á þessu tímabili námu 264 milljónum króna. Hagnaðarhlutfallið er því meira en 40 prósent sem telst afar gott og hátt í rekstri fyrirtækja almennt séð.Fyrirtækið rekur þetta þekkta og vinsæla tjaldsvæði á grundvelli samnings við sveitarfélagið Múlaþing sem á tjaldsvæðið sem staðsett er í miðjum bænum. Eigandi rekstararaðila tjaldsvæðisins heitir Heiður Vigfúsdóttir.Í ársreikningi rekstrarfélagsins sem rekur tjaldsvæðið, Austurfarar ehf., er ekki sundurgreint hversu mikið af tekjunum koma beint frá rekstri á tjaldstæðinu og hversu mikið eru tekjur af öðrum rekstri. Tilgangur félagsins er sagður vera að
Rekstraraðili tjaldsvæðis Egilsstaða hefur greitt tæpar 100 milljónir í arð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar