Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, kynnti í gær tillögur að nýjum refsiaðgerðapakka gegn Rússum. Refsiaðgerðapakkinn verður sá 22. í röðinni sem beinist gegn Rússum, verði hann samþykktur.Von der Leyen segir að refsiaðgerðirnar nái meðal annars til 60 banka og viðskipta á rafmyntamarkaði. Tillögurnar gera meðal annars ráð fyrir að bankarnir verði fjarlægðir úr SWIFT-skilaboðakerfinu sem er notað fyrir alþjóðlegar greiðslur. Sérstakur starfshópur um rafmyntaþvinganir verður stofnaður til að hafa eftirlit með viðskiptum á rafmyntamarkaði.Refsiaðgerðirnar hafa einnig áhrif á rússneskt íþróttafólk og íþróttalið sem verður meinað að keppa undir fána Rússlands. Bannað verður að sýna rússnesk tákn opinberlega og takmarkanir verða á styrkjum frá rússneskum styrktar