Fyrirskipar að flýtt verði fyrir aftöku fanga

Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að fyrirskipa dómsmálaráðherra Bandaríkjanna að flýta fyrir aftöku fanga sem hafa hlotið dauðadóma og eru í alríkisfangelsum í Bandaríkjunum. Hann fordæmir ákvörðun Gavins Newsom, ríkisstjóra Kaliforníu, sem mildaði dóma 548 fanga sem höfðu verið dæmdir til dauða og breytti dómum þeirra í lífstíðardóma fyrr í mánuðinum.Bandaríkjaforseti greindi frá ákvörðun sinni á viðburði sem dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna stóð fyrir í gærkvöld, en þar voru meðal gesta fjölskyldur fórnarlamba sem töluðu gegn ákvörðun Newsom.Trump sagði að 110 barnamorðingjar, yfir 100 nauðgarar sem myrtu fórnarlömb sín og fjöldi raðmorðingja hefðu verið meðal þeirra sem Newsom hefði mildað dómana yfir. Hann sagði ákvörðun Newsom vera hneyksli og eitt mesta óréttlæti sem sést hefði í
Fyrirskipar að flýtt verði fyrir aftöku fanga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar