Dælubíll Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.RÚV / Ragnar VisageSlökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk tilkynningu um eld í tveimur vinnuskúrum á byggingarsvæði í Hafnarfirði kl. 23:48 í gærkvöld.Guðjón Ingason, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir að tveir dælubílar hafi verið sendir á vettvang. Það tók slökkvilið smá tíma að komast inn á svæðið sem er afgirt en slökkvistarf er hafið og unnið er að því að slökkva eldinn.Fréttin verður uppfærð.