Formaður Félags pípulagningameistara segir mikilvægt að fólk kynni sér hitakerfið í híbýlum sínum og bregðist strax við ef eitthvað óeðlilegt á sér stað. Hann lýsir því hvernig íbúar eigi að yfirfara kerfið hjá sér og bilanagreina það þegar vandamál koma upp, hvort sem það er með ofna eða gólfhita.