Gisele Pelicot hefur hótað því að lögsækja franska útgefandann Tinbad fyrir að hafa notað nektarmyndir og myndbönd af henni til þess að kynna bók sálgreinandans Sabine Prokhoris.Pelicot varð þekkt um heim allan þegar málaferli gegn eiginmanni hennar stóðu yfir. Hann var dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir að hafa ítrekað byrlað Pelicot lyf, nauðgað henni og fengið tugi annarra karla til að gera það sama. Hann játaði þátt sinn í málinu. Hann var einnig sakfelldur fyrir að taka og dreifa kynferðislegu myndefni af dóttur sinni og tveimur tengdadætrum.Pelicot sagði í viðtali við franska fjölmiðilinn BFM TV að hún væri hneyksluð og særð yfir því að hlutir úr hennar einkalífi hefðu verið notaðir í auglýsingaskyni.Útgefandinn Tinbad er sagður hafa notað myndirnar og myndböndin til þess að kynna ritger