„Við erum ekki með börn í forgangi“

„Við erum ekki með börn í forgangi. Við erum ekki með börn sem eru í vanda í forgangi,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar.Hann segir sögu Arnars Atla Björnssonar, sem svipti sig lífi síðastliðið sumar 24 ára gamall, harmasögu sem opinberi að það gangi ekki lengur að kerfin bendi hvert á annað.„Svona eru líf fjölmargra sem eru í mjög flókinni stöðu, því miður, kerfin eru ekki að tala saman. Þau eru ekki að rýna neitt,“ segir Grímur.Fjallað var um Arnar Atla í Kastljósi í kvöld. Amma hans, sem ól hann upp, lýsir því hvernig hann féll ítrekað á milli kerfa og fékk ekki þjónustu við hæfi. Hann glímdi við alvarlegar geðrænar áskoranir og flakkaði árum saman milli búsetuúrræða og stofnana. Hann þurfti mikla og sérhæfða þjónustu en þegar aðstandendur óskuðu eftir aukinni aðstoð vi
„Við erum ekki með börn í forgangi“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar