Verkefnið Brothættar byggðir hófst á Raufarhöfn árið 2012. Þar voru þá miklir erfiðleikar, íbúum hafði fækkað um 46% á tólf árum, allur kvóti var horfinn úr byggðarlaginu og fiskimjölsverksmiðjan lokuð.„Það voru engin ráð tiltæk til að snúa þessari þróun við, það er að segja þeir aðilar, Byggðastofnun, sveitarfélagið, verkalýðsfélagið og Háskólinn á Akureyri, sem tengdust þessu í upphafi. Menn höfðu í rauninni engin úrræði og það var strax ákveðið að reyna að vinna út frá hugmyndum íbúanna,“ segir Kristján Þ. Halldórsson, annar tveggja umsjónarmanna Brothættra byggða. GENGIÐ ÚT FRÁ HUGMYNDUM ÍBÚANNA OG MÁLEFNUM SEM ÞEIR VILJA AÐ KOMIST Á DAGSKRÁ Kristján segir að verkefnið snúist fyrst og fremst um að íbúarnir komi hugmyndum sínum á framfæri á íbúafundum og forgangsraði þar málefnum sem