Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Tyrklandi átti að ljúka á föstudag en lauk ekki fyrr en í gær vegna þrefs um texta lokasamþykktar. Olíuframleiðsluríki eru sökuð um að beita þrýstingi svo að ekki yrði minnst á að minnka notkun jarðefnaeldsneytis. Fulltrúar allra ríkja á ráðstefnunni þurfa að samþykkja textann.„Ég er afar vonsvikinn yfir að COP31 lauk án sáttar um almenna niðurstöðu. Á tímum þegar loftslagsbreytingarnar eflast óðum mistekst stjórnvöldum að mæta þeim í samræmi við það,“ sagði Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, í dag.Hann sagði niðurstöðuna sérstaklega bagalega fyrir smá eyríki sem ættu litla sök á loftslagsvandanum en fyndu mest fyrir honum. „Vegna öflugri storma, hækkandi sjávarstöðu,efnahagstjóns og hækkandi útgjalda til að verja fólk sitt.“