„Þarsíðasta sumar hafði samband við okkur ungur maður, Marcus Adolf, sem sagðist vera að koma til Íslands eftir nokkra daga. Hann væri kvikmyndagerðarmaður og vildi gera stutta heimildarmynd um fyrirtækið okkar, JS Watch co. Reykjavik,“ segir Grímkell Sigurþórsson, hönnuður og markaðsstjóri fyrirtækisins, og segir að að sjálfsögðu hafi verið vel tekið í það.