Ungur maður féll fyrir eigin hendi síðastliðið sumar. Hann glímdi við alvarlegar geðrænar áskoranir og flakkaði árum saman milli búsetuúrræða og stofnana. Hann þurfti mikla og sérhæfða þjónustu en þegar aðstandendur óskuðu eftir aukinni aðstoð virtist fátt standa til boða.Arnar Atli Björnsson lést 19. júní síðastliðinn. Hann svipti sig lífi eftir stutta en erfiða ævi. Hann var 24 ára. Uppritið hér fyrir ofan er upprit af símtali Sigrúnar Pálmadóttur, ömmu hans, við Neyðarlínuna skömmu áður en hann fannst lífvana heima hjá sér. GLÍMDI VIÐ FJÖLÞÆTTAN VANDA FRÁ ÆSKU Fjallað var um Arnars Atla í Kveik nýverið í tengslum við einkarekin búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda. Hann dvaldi einmitt í um sex ár í slíkum úrræðum.„Hann var náttúrulega alveg ótrúlega skemmtileg persóna,“ segir