Framkvæmdastjóri nethýsingarfyrirtækisins 1984 vonar að starfsemi verði komin í samt lag í síðasta lagi á miðvikudag. Hann vill ekki fullyrða að Ísraelsmenn hafi staðið á bak við árásina – og það komi kannski aldrei í ljós.Í dag, þremur dögum eftir að árásin lamaði starfsemi fyrirtækisins, var hún ekki enn komin af stað aftur, þótt hillti undir að tölvupóstþjónusta kæmist í lag, auk annars.„Svo kannski á morgun, síðari hluta dags, verða vefirnir komnir upp, á ég von á – í síðasta lagi á miðvikudaginn. Þannig að í fyrri hluta þessarar viku verðum við komnir upp að öllu leyti,“ segir Mörður Áslaugarson, framkvæmdastjóri 1984 ehf.Af öryggisástæðum fékk fréttastofa ekki að heimsækja 1984 og fylgjast með björgunaraðgerðum – og reyndar er það líka leyndarmál hvar fyrirtækið er yfirhöfuð til húsa