Sjö fálkaungar sem voru merktir með senditækjum við Mývatn í sumar hafa verið á ferð um nær allt norðausturhorn landsins í haust. Þetta er í fyrsta sinn sem ferðir íslenskra fálka eru skráðar í rauntíma og segir Ólafur Karl Nielsen vist- og fuglafræðingur og höfundur greinargerðarinnar að blað sé brotið í fálkarannsóknum á Íslandi.