Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, segir það óhugsandi að Bretland gangi aftur í Evrópusambandið án þess að þjóðin greiði um það atkvæði. Burnham greindi breska þinginu í dag frá efni samkomulags sem Bretar gerðu við Evrópusambandið fyrir helgi og tók í kjölfarið við spurningum.Það felur meðal annars í sér að tollskoðun útflutnings á meirihluta breskra matvæla verður hætt. Í staðinn ætla bresk stjórnvöld að innleiða tilskipanir Evrópusambandsins sem snúa að hollustuháttum.Til stendur að auðvelda ungu fólki frá Bretlandi að stunda nám eða vinnu í Evrópu og öfugt. Bretar ætla að taka þátt í losunarbókhaldi Evrópusambandsins og fá í staðinn tolla afnumda á hluta af útflutningi áls og stáls.Þá ætla löggæsluyfirvöld beggja vegna Ermarsunds að deila meiri upplýsingum sín á milli og vinna