Arnarvarp ársins í meðallagi

Náttúrufræðistofnun telur arnarvarp sumarsins 2026 vera í meðallagi samanborið við fyrri ár. Alls verptu 61 par en aðeins 41 kom ungum á legg, 58 talsins.Árlega eru 100 óðul skoðuð af Náttúrufræðistofnun og telur stofnunin að 78 þeirra hafi verið setin í ár. Þá fannst einnig varp á þremur áður óþekktum stöðum.Eins og áður segir voru 41 par sem komu upp ungum. Það þýðir að 20 pörum mistókst að koma upp ungum. Stofninn er talinn í hægum en öruggum vexti. LEIÐARRITAR MIKILVÆGIR Í RANNSÓKNUM Flest arnaróðul eru á vestanverðu landinu, frá Faxaflóa að Húnaflóa í norðri.Aðeins tókst að setja leiðarrita á tvo unga í sumar vegna óhagstæðs veðurfars og aðgengi að óðulum var erfitt. Sökum þess drógust merkingar fram í ágúst og þá voru ungarnir orðnir stórir og hálffleygir.Á vef Náttúrufræðistofnun
Arnarvarp ársins í meðallagi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar