Þær María Káradóttir, settur lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, og Margrét Kristín Pálsdóttir, settur lögreglustjóri á Suðurnesjum, teljast hæfastar til að gegna embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að mati nefndar sem fengin var til að meta hæfni umsækjenda.Þetta kemur fram í skriflegu svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. Nefndin boðaði fjóra af sex umsækjendum í viðtal og kynningu og komst í kjölfarið að framangreindri niðurstöðu eftir að allir fjórir höfðu sent ábendingar eða athugasemdir við mat hennar. Ákvörðun nefndarinnar stóð óhögguð.Dómsmálaráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar í júní eftir að Halla Bergþóra Björnsdóttir var skipuð ríkislögreglustjóri. Fjórir fyrrverandi og núverandi lögreglustjórar sóttu um embættið.Umsækjendur auk Maríu og