Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hóf í dag rannsókn á Coca-Cola Europacific Partners (CCEP). Grunur leikur á að fyrirtækið hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með þeim afleiðingum að neytendur hafi þurft að borga hærra verð fyrir gosdrykki sína en ella.Til skoðunar er hvort átöppunarfyrirtækið hafi brotið samkeppnisreglur ESB, meðal annars með því að standa í vegi fyrir flutningi gos- og íþróttadrykkja milli landa sambandsins. Auk þess er til skoðunar hvort fyrirtækið hafi breytt stærðum á drykkjarumbúðum milli markaða til að gera viðskipti milli landa flóknari og hvort fyrirtækið hafi borgað heildsölum fyrir að takmarka innflutning gosdrykkja til Spánar, að því er segir í frétt Politico.Teresa Ribera, framkvæmdastjóri sambandsins á sviði samkeppnismála, segir í yfirlýsingu að rannsó