Háskóla Íslands og Keflavíkurflugvelli bárust sprengjuhótanir í tölvupósti í morgun. Lögregla greindi frá því í dag í kjölfar fyrirspurnar fréttastofu að ýmsum stofnunum og fyrirtækjum hefðu borist sprengjuhótanir í gegnum tölvupóst.Samskiptadeild HÍ staðfestir að slíkur póstur hafi borist háskólanum snemma í morgun. Hann hafi verið tilkynntur til lögreglu sem hafi metið hótunina ótrúverðuga og skólinn því ekki þurft að bregðast frekar við.Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia staðfestir sömuleiðis að flugvellinum hafi borist slík hótun. Hún hafi samstundis verið tilkynnt til lögreglu.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfesti einnig að þremur hótelum á höfuðborgarsvæðinu hefðu borist hótanir í tölvupósti.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er ekkert sem bendir til þess að hótanirnar tengi