Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu ekki unnt að segja til um ástæður þess að íslenskur karlmaður smitaðist af creutzfeldt-jakob-sjúkdómi sem dró hann til dauða 1. nóvember. Ekkert hafi komið fram sem bendi til smits í þessu tilfelli, segir í svari Guðrúnar.Hún segir að um 85% tilvika svokallaðs sporadísks creutzfeldt-jakob komi upp án þekktrar orsakar eða smitleiðar enda sé hann ekki smitsjúkdómur í hefðbundnum skilningi. Engar leiðir séu því þekktar til að koma í veg fyrir þetta sporadíska afbrigði sjúkdómsins.Allt bendi til þannig hátti varðandi manninn sem lést 1. nóvember og ekkert bendi til smits eða arfgengrar orsakar. „Því er ekki hægt að segja að einstaklingur hafi smitast á tilteknum stað eða í tilteknu landi,“ segir í svarinu.Sporad