Tólf þúsund manns þurftu að rýma Co-op Live-tónleikahöllina í Manchester í gærkvöldi eftir að tónleikagestir hófu að berjast við að ná andanum vegna rauðs reyks sem var ekki hluti af tónleikunum. Um var að ræða tónleika bandaríska rapparans Don Toliver en uppruni reyksins er óþekktur og er málið nú til rannsóknar hjá lögreglu.