Tjörneshreppur er fámennasta sveitarfélag landsins með 54 íbúa. Innan við 100 íbúar eru í tveimur öðrum sveitarfélögum. Í Árneshreppi búa 60 og í Skorradalshreppi 72.Tjörneshreppur er í Suður-Þingeyjarsýslu, umlukinn sveitarfélaginu Norðurþingi. Tjörnesingar sögðu sig úr Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Eyþingi (nú SSNE) árið 2019, í táknrænum mótmælum við áformum um lágmarksíbúafjölda í hverju sveitarfélagi. VILDU SKILA FRAMLAGI JÖFNUNARSJÓÐS Tjörneshreppur fékk ríflega 247 milljónir króna úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga 2025 í svokallað fólksfækkunarframlag. Það var eina sveitarfélagið sem uppfyllti skilyrði um fólksfækkun þrjú ár í röð og fékk því allan sjóðinn.Tjörnesingar vildu skila peningunum en fengu það ekki. Til þess hefði þurft lagabreytingu og því má segja að þeir hafi set