Þrjár kindur hefðu hlotið sorglegan dauðdaga ef ekki hefði verið fyrir sjö manna flokk frá björgunarsveitinni Báru á Djúpavogi. Ærnar hröktust út í Hamarsá og bárust niður með ánni þar sem þær festust í skúta niðri í gili þangað sem enginn kemst nema með miklum tilfæringum. STEFNDI Í AÐ KINDURNAR MYNDU KÚTVELTAST NIÐUR FOSSINN Rjúpnaskyttur komu auga á eftirlegukind með tvö lömb á Hamarsdal á laugardag og létu vita. Í gærmorgun hugðist eigandinn sækja féð en Hamarsdalurinn er erfiður. Hann er mjög gilskorinn með stöllum og fossum. Kindurnar lentu út í Hamarsá, kútveltust niður ána og nálguðust Einstigsfoss. Rétt fyrir ofan fossinn tókst þeim að klóra í bakkann og koma sér inn í hellisskúta. Þar var vistin vond og sjö manna hópur frá Björgunarsveitinni Báru á Djúpavogi var ræstur út.„Þær