Sundfötin gætu komið sér vel í ferðinni á bókasafnið á morgun. Borgarbókasafnið í Úlfarsárdal og Dalslaug bjóða þá til kyrrðarkvölds þar sem gestir geta flotið í innilauginni og hlustað á ljúfa tóna úr nepölskum söngskálum í sal safnsins. Í Dalslaug gefst gestum færi á að fljóta saman og láta líða úr sér í vatninu. Þau sem vilja hafa það rólegt...