Ýmsum stofnunum og fyrirtækjum bárust sprengjuhótanir í tölvupósti í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu í kjölfar fyrirspurnar fréttastofu.Í tilkynningunni segir að lögregla taki allar slíkar hótanir alvarlega og meti hvert tilvik. Miðað við þær upplýsingar sem liggi fyrir að svo stöddu telji hún aftur á móti ekki ástæðu til frekari aðgerða en fylgist áfram grannt með stöðu mála.Það sé til skoðunar hvort hótanirnar tengist sambærilegum hótunum sem bárust hér á landi fyrr í mánuðinum.Ekkert bendi hins vegar til þess að þær tengist hótunum sem borist hafa í Evrópu undanfarna daga.Ásmundur Rúnar Gylfason aðstoðaryfirlögregluþjónn segir lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa borist fjórar tilkynningar um hótanir. Þar af hafi þrjár beinst að hótelum og ein að opinberri stofnun.B