Andri Rúnar Bjarnason er með lausan samning eftir tvö tímabil í Stjörnunni. Markaskorarinn, sem varð 36 ára fyrr í þessum mánuði, var á dögunum orðaður við Fylki í Dr. Football. Stjarnan hefur ekkert gefið út varðandi framtíð Andra og virðist enn möguleiki á því að hann verði áfram hjá félaginu.