„Í rauninni kemur mér ekkert lengur á óvart sem kemur úr ranni Sjálfstæðisflokksins þessa dagana,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er hún var krafin svara um samning utanríkisráðuneytisins við ráðgjafafyrirtækið Nebraska.Fyrirtækið er í eigu Heiðu Kristínar Helgadóttur og eiginmanns hennar, en hún var fengin til að veita ráðherra ráðgjöf í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.Morgunblaðið greindi frá því að samningurinn hafi verið gerður þrátt fyrir að Nebraska hafi skuldað opinber gjöld. Einnig hefur komið fram að tveir reikningar hafi verið gefnir út eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Upphaflegur verktakasamningur kvað á um 1.750 þúsund króna greiðslu á mánuði fyrir 25 vinnustundir á viku. Sú upphæð var síðar hækkuð en ekki