Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra hvers vegna ríkisstjórnin hefði beðið í tæp tvö ár með að ráðast í hagræðingu í ríkisrekstri. Í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í dag sagði Guðrún heimilin hafa borið kostnaðinn af biðinni. Kristrún sagði að tillögur um hallalaus fjárlög kæmu fyrir fjárlaganefnd á næstu dögum. Guðrún rifjaði upp að Kristrún hefði fyrir kosningar...