Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag íslenskan karlmann í tólf mánaða fangelsi fyrir skjalafals og fyrir að aka undir áhrifum ávana- og fíkniefna þrátt fyrir ævilanga sviptingu ökuréttar. Maðurinn sendi aðstoðarsaksóknara falsað læknisvottorð í því skyni að komast hjá saksókn vegna akstursins. Lögregla stöðvaði manninn á Kringlumýrarbraut við Miklubraut í Reykjavík sunnudaginn 20. júlí 2025. Í blóðsýni sem tekið var úr...