Rússar vara við frekari stigmögnun á Eystrasalti

Dmitry Peskov, talsmaður rússneskra stjórnvalda í Kreml, varaði í morgun við stigmögnun átaka á Eystrasalti eftir að finnsk stjórnvöld greindu frá því að drónar sem notaðir voru í árás á rússneskt flutningaskip á laugardag væru að öllum líkindum úkraínskir.Peskov sagðist vona að Eystrasaltsríkin myndu „beita áhrifum sínum“ á Úkraínu og vara þarlend stjórnvöld við því að halda árásum sem þessum áfram. Hann sagði árásirnar vera hryðjuverk sem ykju spennu í heimshlutanum.Peskov tjáði sig ekki um árásir á rússnesk herskip við strendur Líbíu þrátt fyrir spurningar blaðamanna. ÚKRAÍNUMENN FÆRA ÚT KVÍARNAR Úkraínumenn eru farnir að ráðast að Rússum víðar en áður. Auk árásarinnar á flutningaskipið þá gerðu Úkraínumenn drónaárás á tvö herskip við strendur Líbíu í gær. Annað þeirra sökk.Volodymyr
Rússar vara við frekari stigmögnun á Eystrasalti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar