Ætla að stækka flugvöllinn á Kastrup umtalsvert

Til stendur að stækka Kaupmannahafnarflugvöll umtalsvert. Áætlanir gera ráð fyrir að flugvöllurinn geti tekið á móti 55 milljónum farþega árlega að framkvæmdum loknum. Búist er við að 34,5 milljónir farþega fari um flugvöllinn í ár. Til samanburðar gerir farþegaspá Isavia ráð fyrir að 7,5 milljónir farþega fari um Keflavíkurflugvöll í ár.Í fréttatilkynningu frá rekstrarfélagi flugvallarins segir að gert sé ráð fyrir að framkvæmdum ljúki 2028. Þar segir að stækkuninni sé ætlað að styrkja tengsl Danmerkur við umheiminn og stuðla að fjölgun starfa og hagvexti.„Sem lítið land með opið hagkerfi er Danmörk mjög háð tengingunni við restina af heiminum,“ segir Christian Poulsen, forstjóri rekstrarfélags Kaupmannahafnarflugvallar. „Þetta samband tryggir aðgang danskra fyrirtækja að erlendum mörkuðu
Ætla að stækka flugvöllinn á Kastrup umtalsvert

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar