„Ég sé ekki alveg stóra glæpinn í þessu“

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, hafnar því að ekki hafi verið greitt fyrir hlut hans í strandveiðiútgerðinni Sleppu hf. Hann segir að sölunni á hlutnum hafi verið rift vegna þess að útgerðin gekk illa hjá kaupanda. „Ég sé ekki alveg stóra glæpinn í þessu,“ segir hann.Morgunblaðið greindi frá því í dag að kaupum á 50% hlut Sigurjóns og 1% hlut eiginkonu hans í Sleppu hefði verið rift í mars. Í kaupsamningi sem blaðið birti er kaupverðið 255 þúsund krónur. Blaðið fullyrðir að kaupandinn hafi ekki greitt krónu fyrir hlutinn.Sigurjón segir það af og frá. Kaupandinn, sem er dóttir vinar hans, segir hann að hafi greitt hlutafé í skuldsettu félagi. ÁTTI AÐ GREIÐA SKULDINA MEÐ INNKOMU Sigurjón sagði í fyrra að kaupverð hlutarins í Sleppu hefði verið um 18 milljónir. Hann stendur
„Ég sé ekki alveg stóra glæpinn í þessu“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar