Ferðalangarnir Justus og Kayla gagnrýna viðbrögð bandaríska flugfélagsins Delta eftir að þau fengu Rimowa-ferðatösku sína afhenta stórskemmda við komuna til Atlanta. Taskan kostaði að þeirra sögn um 2.000 Bandaríkjadali en þær sem félagið bauð í hennar stað kostuðu á bilinu 200 til 300 dali. Parið birti myndskeið á TikTok þar sem Justus sýnir skemmdirnar. Hann segir að starfsmaður hafi látið...