Mörður Áslaugarson, framkvæmdastjóri nethýsingarfyrirtækisins 1984, hrósar viðbrögðum CERT-IS við netárásinni sem gerð var fyrir helgi en kallar eftir meiri og betri stuðningi frá hinu opinbera þegar ráðist er á mikilvæga og ómissandi innviði.„Og þau koma eftir á og finna hugsanlega einhverja veika punkta í okkar aðgerðum og refsa okkur. Þau sekta okkur. Ég lýsi eftir því að hið opinbera komi og styðji okkur en refsi okkur ekki.“Mörður segir að í morgun hafi verið stutt í að unnt yrði að endurræsa tölvupóstþjónustu fyrirtækisins þegar óskyldur öryggisveikleiki uppgötvaðist. > Þetta lýsir mjög vel því ástandi sem er í upplýsingatækni í heiminum. Við vorum búin að lofa því að setja tölvupóstþjónustuna í gang í morgun og vorum bara með puttann yfir enter-takkanum að setja hana online þegar t