Má heita Hrafnhljóð en ekki Yrma

Kvenmannsnafnið Yrma hlaut ekki náð mannanafnanefndar. Nefndin hefur birt úrskurði sem voru kveðnir upp 18. nóvember. Allar nafnbeiðnir voru samþykktar að undanskilinni nafninu Yrmu.Í rökum þeirra segir að rithátturinn Yrma sé ekki í samræmi við íslenskar ritreglur. Stafurinn y sé ekki ritaður í íslenskum orðum nema þar sem hann styðst við uppruna en það eigi ekki við í þessu tilviki. Þá hafi ritháttur nafnsins heldur ekki unnið sér hefð í íslensku máli.Kvenkyns nöfnin Brimbrá, Hrafnhljóð, Valörk, Antonína, Gaia og Mána voru öll samþykkt.Þá féllst nefndin á föðurkenningarnar Íansdóttir og Mikaelsson auk móðurkenningarinnar Katarínubur.
Má heita Hrafnhljóð en ekki Yrma

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar