Framkvæmdastjóri nethýsingarfyrirtækisins 1984 lýsir stefnuleysi hjá stjórnvöldum í netöryggismálum. Hið opinbera vilji fremur refsa en styðja þegar ráðist sé á mikilvæga innviði líkt og hafi verið gert í netárás í síðustu viku. Búið sé að hreinsa upp eftir árásina og vonir standa til þess að starfsemin verði komin í eðlilegt horf í vikunni.