Rússnesk stjórnvöld vöruðu í dag við versnandi öryggisástandi á Eystrasalti eftir að grunur vaknaði um að úkraínskur dróni hefði ráðist á rússneskt flutningaskip um helgina. „Útbreiðsla hryðjuverkastarfsemi á Eystrasaltssvæðinu er sannarlega mjög hættuleg þróun. Þetta er mjög hættulegt og eykur auðvitað spennuna á svæðinu,“ sagði Dmítrí Peskov, talsmaður Kreml, við blaðamenn. Hann vildi ekki tjá sig um árásir á rússnesk...