Óvenjulega mikill hávaði í kvikmyndahúsum var til umræðu í nýjasta þætti Mennningarvaktarinnar. Blaðamaðurinn Valur Grettisson sagði japönsku stórmyndina Godzilla Minus Zero frábæra en hávaðinn í bíóinu nær óbærilegur. Símon Birgisson tók í sama streng og sagði að synir hans hefðu haldið fyrir eyrun á myndinni.