Frumvarp utanríkisráðherra um innleiðingu Bókunar 35 var afgreitt út úr utanríkismálanefnd í morgun. Þetta staðfestir formaður nefndarinnar, Grímur Grímsson. Fulltrúar flokka í minnihlutanum greiddu atkvæði gegn málinu en fulltrúar meirihlutans fleyttu því áfram. Frumvarpið var fyrst lagt fram af utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokks í tíð síðustu ríkisstjórnar en þingið hefur aldrei megnað að klára málið. Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur höfðað mál gegn íslenska ríkinu vegna annmarka á innleiðingu bókunarinnar.Eftir því sem fréttastofa kemst næst hefst önnur umræða um málið í þessari viku. Búast má við að sú umræða standi mjög lengi.RÚV / Ragnar Visage