Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti staðfesti í morgun að Úkraínumenn hefðu sökkt rússnesku herskipi við bryggju í Bengasí í Líbíu í gær. Þá sagði hann einnig að ráðist hefði verið á rússneskt fraktskip undan ströndum Líbíu. Ráðist var á bæði skipin með bátadrónum í um 2.400 kílómetra fjarlægð frá víglínunni í Úkraínu.