Þýsku miðlarnir WDR, NRD og Süddeutsche Zeitung greina frá þessu í dag í kjölfar sameiginlegrar rannsóknar. Vestrænar leyniþjónustur eru sagðar hafa fyrir þessu heimildir, að gervihnötturinn sem kallast Spútnik-S sé tilbúinn og geymdur í nánd við Moskvu og eigi að verða skotið á loft innan sextíu daga, jafnvel fyrir jól.Bandaríska herleyniþjónustan DIA birti raunar skýrslu í október þar sem greint var frá því að Rússar ynnu að þróun svona vopns, þvert á geimferðasáttmálann frá 1967. Þar stendur skýrum orðum að bannað sé að setja kjarnorkuvopn eða önnur gjöreyðingarvopn á sporbraut um jörðu. Í skýrslu DIA segir að litlar raunverulegar varnir eða mótaðgerðir séu gegn vopni af þessu tagi, komist það á annað borð á sporbraut.Yrði svona vopn notað og kjarnorkusprengja sprengd í geimnum yrðu afl