Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, seldi ungum skipstjóra smábátaútgerðina sína, Sleppu ehf, skömmu eftir að breytingar urðu á reglugerð um strandveiðar í fyrra. Í Morgunblaðinu í dag er hann sakaður um „sýndarsamning“ og að hafa „hallað réttu máli um viðskiptin“. Þannig hafi samningur um riftun viðskiptanna við skipstjórann Sigurbjörgu Áróru Ásgeirsdóttur, ári eftir að hún tók yfir útgerðina, ekki falið...