Fjármálaráðherra segist deila áhyggjum manna af litlum hagvexti eins og nú mælist hér á landi. Hann bendir þó á að ekki sé um samdrátt að ræða og að fyrst verði að ná niður verðbólgunni áður en hagvöxtur glæðist á ný. Hagfræðingur sagði um helgina greinileg samdráttarmerki í hagkerfinu. Lítill hagvöxtur ætti að vera áhyggjuefni og staðan væri verri hér en annars staðar í Evrópu. Rætt verður við fjármálaráðherra í hádegisfréttum á Bylgjunni.