Fjárfestingarsjóður með fasteignaþróunarfélagið Klasa í aðalhlutverki hefur fest kaup á Blikastaðalandi. Það var áður í eigu dótturfélags Arion banka.Kaupverðið er 15,6 milljarðar króna. Fyrstu níu milljarðarnir verða greiddir þegar samningurinn kemst til framkvæmda, 3,5 milljarðar 2033 og lokagreiðsla upp á 3,1 milljarð 2038.Lengi hefur staðið til að byggja á Blikastaðalandi. Síðasta vetur voru tilkynnt áform um að byggja þar 1.200 íbúðir fyrir 3.000 manns á næstu sjö árum. Þegar upp er staðið gætu 3.500 til 3.700 íbúðir risið. Einnig stendur til að reisa þar atvinnu- og verslunarhúsnæði. Íslensk verðbréf keyptu öll hlutabréf í Blikastaðalandi ehf. af Landey ehf., dótturfélagi Arion banka. Kaupin eru gerð fyrir hönd óstofnaðs sjóðs þar sem Klasi verður kjölfestufjárfestir.