Fjöldi sprengjuhótana berst dönskum skólum

Sprengjuhótanir hafa borist mörgum skólum víða í Danmörku í morgun. Í frétt danska ríkisútvarpsins DR segir að hótanirnar hafi borist með tölvupósti.Hótanir hafa borist skólum í Kaupmannahöfn, víða á Sjálandi og Jótlandi sem og á Fjóni. Lögreglan telur enga ógn stafa af hótununum og hvetur til stillingar.Á Norður-Jótlandi hefur lögreglan til að mynda ekki séð ástæðu til að rýma skóla en hótanir hafa borist nokkrum skólum í umdæminu.Lögreglan rannsakar hótanirnar og er í samskiptum við þá skóla sem hafa fengið sprengjuhótanir. ALDA SPRENGJUHÓTANA SKOLLIÐ Á EVRÓPSKUM SKÓLUM Þetta minnir óneitanlega á fjölda sprengjuhótana sem bárust skólum á Ítalíu fyrr í þessum mánuði. Í frétt DR segir að um 6.300 skólum, af nærri 7.500 sem ítalska ríkið rekur, hafi borist sprengjuhótanir með tölvupósti.
Fjöldi sprengjuhótana berst dönskum skólum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar