Holloway orðinn atvinnulaus - „Dead man walking“

Hinn litríki karakter Ian Holloway hefur verið rekinn sem stjóri Swindon Town eftir rétt rúm tvö ár við stjórnvölinn. Tap gegn Newport County á laugardaginn skildi liðið eftir í 17. sæti í ensku D-deildinni og var það fjórði tap þeirra í röð í öllum keppnum. Þeir hafa aðeins unnið tvo af síðustu fimmtán leikjum sínum og Holloway sagði í síðasta mánuði að hann væri „gangandi dauður maður“ ef liðið næði ekki að rétta úr kútnum. Brot úr þessu kostulega viðtali má sjá hér að neðan. Holloway er reynslumikill stjóri sem stýrði Blackpool og Crystal Palace upp í ensku úrvalsdeildina á sínum tíma. Þá er hann þekktur fyrir áhugaverð svör og mörg gullkorn í viðtölum við fjölmiðla.
Holloway orðinn atvinnulaus - „Dead man walking“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar