Næstum fjórðungur barna heimsins býr á átakasvæðum. Það er methlutfall frá því farið var að halda utan um slíkar upplýsingar árið 1990. Hlutfallið jafngildir meira en fimmtíu prósenta aukningu á einum áratug segir í nýrri skýrslu hjálparsamtakanna Barnaheilla eða Save the Children.Börnum sem búa eða hafast við á stríðshrjáðum svæðum hefur fjölgað úr 378 milljónum árið 2015 upp í 589 milljónir á síðasta ári.Skýrslan ber titilinn „Stöðvið stríðið gegn börnunum“ og byggir á tölfræðigögnum frá Friðarrannsóknarstofnuninni í Osló, PRIO. Frá því um miðjan tíunda áratug síðustu aldar hefur hlutfall barna búsettra á átakasvæðum meira en tvöfaldast úr tíu af hundraði í 23,4 prósent árið 2025.„Þessar sláandi tölur eru skýr áminning um þau hrikalegu áhrif sem stríðsátök hafa á daglegt líf, menntun, he