Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, segir kaup ungrar konu í fyrra á hlut í félagi sem hann, Sleppa, og og strandveiðibáti sem hann á og rekur ekki hafa gengið upp vegna bilunar. Unga konan hafi komist þrisvar út á bátnum í fyrra og bæði hún og Sigurjón tekið á sig verulegan kostnað vegna bilunar. Hún ætlaði að greiða fyrir bátinn með greiðslu fyrir þann afla sem hún myndi veiða en það gekk ekki eftir.