Réttarerfðafræðingur ræktar sæeyru í Grindavík

Óhætt er að segja að starfsferill Richards Kristinssonar Dulaney hafi tekið nokkuð óvænta stefnu. Árið 2007 útskrifaðist hann með doktorsgráðu í réttarerfðafræði frá háskólanum í Denver í Bandaríkjunum.„Þar var ég að vinna í rannsóknarverkefni sem var náttúrulega doktorsverkefnið mitt. En líka að vinna með lögregluumdæmum í Colorado, Kanada og víðsvegar um heiminn, Suður-Kóreu og Kína meðal annars. Við að þróa nýja tækni í erfðafræði sem nýtist í mjög flóknum rannsóknum eins og morðmálum, allri sýnatöku sem kom út úr 9/11. Að aðskilja erfðaefni sem ekki var hægt að aðskilja áður,“ segir Richard. Hann gat hins vegar ekki hugsað sér að búa áfram í Bandaríkjunum og sneri aftur heim. Hann starfaði sem yfirmaður hjá Tandri og Mjöll Frigg síðustu ár en tók við sem fjármálastjóri hjá Aurora Abalo
Réttarerfðafræðingur ræktar sæeyru í Grindavík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar