Vagn á leið 12 hjá Strætó ók á litla rútu upp úr klukkan hálfníu í morgun þegar hann beygði af Snorrabraut inn á Hverfisgötu í Reykjavík. Nokkrar umferðartafir urðu vegna árekstursins. Áreksturinn virtist vægur en ekki liggur fyrir hvort einhver slasaðist. Að minnsta kosti einn lögreglubíll var á vettvangi.